Hjartavernd á heimsmælikvarða

Ísland er fremst í flokki þegar kemur að því að draga úr dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma og vekur árangurinn mikla eftirtekt erlendis. Þetta kom m.a. fram í viðtali RUV við Thor Aspelund, tölfræðing hjá Hjartavernd, 14.maí.

Niðurstöður rannsóknar sem Hjartavernd vann með Háskóla Íslands voru nýverið kynntar erlendum sérfræðingum. Þar kemur fram að frá árinu 1981 til 2006 dró úr dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma um 80% hjá fólki frá 25 til 74 ára.

Thor segir að þessi góði árangur sé að stærstum hluta rakinn til lífsstílsbreytinga hér á landi. 75% árangursins má skýra með breytingu á áhættuþáttum hjá þjóðinni en 25% til bættra meðferða á spítölum og betri lyfja.

Kólesteról, reykingar og blóðþrýstingur séu þrír helstu áhættuþættirnir sem tengist hjartasjúkdómum. Thor segir að staða þessara þátta hafi batnað mikið hjá þjóðinni sem skýri hversvegna dregið hafi gríðarlega úr dauðsföllum fólks yngra en 75 ára.

Thor segir að árangurinn sé fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir og sérstaklega áherslan á forvarnarstarfið sem virðist skila mestu. Niðurstöður rannsóknarinnar voru fyrir skömmu kynntar á ráðstefnu í Stokkhólmi. Íslendingar séu fremstir í flokki, með hæsta fall í tíðni hjartasjúkdóma sem sést hafi.

(fengið af vef RUV, 14. maí) 


15.5.2009 09:09


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...