Hjálparvakt tannlækna - ókeypis neyðarþjónusta fyrir börn og unglinga


Printer-friendly version

Hjálparvakt tannlækna er samstarfsverkefni Tannlæknafélags Íslands og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, sem efnt er til vegna breyttra aðstæðna í samfélaginu. Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst til hins vera á síðustu mánuðum og reynslan sýnir að eitt af því sem foreldrar neyðast til að spara þegar að þrengir eru tannviðgerðir og eftirlit hjá börnum og unglingum.

Tannlæknar hafa ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu, þar sem börnum og unglingum undir 18 ára aldri verður boðið upp á tannlæknaþjónustu, þeim og foreldrum þeirra að kostnaðarlausu. Þjónustan verður veitt í húsnæði Tannlæknadeildar í Læknagarði annan hvern laugardag út maí, í fyrsta skipti laugardaginn 4. apríl frá kl. 10:00-13:00.

Nánari upplýsinga eru veittar hjá Tannlæknadeild í síma 525 4850 milli kl. 8:00-16:00 virka daga. 

Hjálparvakt tannlækna - auglýsing (pdf)