Helgi Áss Grétarsson flytur erindi hjá FAO

Helgi Áss Grétarsson
Helgi Áss Grétarsson

Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands og doktorsnemi við lagadeild Háskólans, heldur erindi í höfuðstöðvum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm föstudaginn 5. mars næstkomandi. FAO hefur um langt skeið safnað saman upplýsingum um fiskveiðistjórn, bæði á meðal einstakra strandríkja innan efnahagslögsögu þeirra sem og á úthafinu. Erindi Helga mun fjalla um ýmis lagaleg álitaefni sem vaknað hafa við framkvæmd íslenska fiskveiðistjórnkerfisins. Tilgangurinn með þessu er m.a. sá að gefa starfsmönnum stofnunarinnar færi á að kynna sér betur íslensku leiðina og hvaða lagalegu spurningar geti vaknað ef sambærileg leið verði valin við fiskveiðistjórn annarra ríkja.


5.3.2010 09:32


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...