Háskóladagurinn er laugardaginn 20. febrúar - Allt grunnnám við HÍ kynnt

Hinn árlegi Háskóladagur er laugardaginn 20. febrúar nk. Þá kynnir Háskóli Íslands ásamt öllum öðrum háskólum á landinu það nám sem fólki stendur til boða á næsta skólaári.

Allt framboð í grunnnámi við HÍ verður kynnt á milli klukkan 11 og 16 í Háskólatorgi, Odda og Gimli. Einnig verður kynnt ýmis þjónusta sem stendur nemum HÍ til boða, félagslíf og fleira.

Fræðasvið Háskóla Íslands eru fimm: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Deildirnar eru 25 og námsleiðirnar skipta hundruðum. Námsframboðið er því mjög fjölbreytt og námskynningin er kjörinn vettvangur fyrir þá sem hyggja á nám við HÍ að kynna sér hvaða möguleikar eru í boði.

Fulltrúar deilda, bæði nemendur og kennarar, verða á svæðinu og geta svarað spurningum sem brenna á gestum. Einnig verður hægt að nálgast kynningarbæklinga, skoða háskólasvæðið og njóta skemmtiatriða.

Nánari upplýsingar um námskynninguna og námsframboðið er hér:

http://namskynning.hi.is/

Aðrir íslenskir háskólar verða með kynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur en þar verða Háskólinn á Akureyri – Háskólinn á Bifröst – Háskólinn á Hólum - Háskólinn í Reykjavík – Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands Í Norræna húsinu munu Norrænir háskólar standa að kynningu á sínum námsmöguleikum.

Stúdentsefni og allir þeir sem hafa áhuga á að kynna sér möguleikana í háskólanámi, geta þannig auðveldlega gengið á milli þeirra staða þar sem námsmöguleikanir verða kynntir.

Námskynningar munu einnig verða á landsbyggðinni en þær verða á eftirfarandi stöðum: 2. mars Menntaskólanum á Egilsstöðum 3. mars Verkmenntaskólanum á Akureyri 10. mars Menntaskólanum á Ísafirði Námskynningarnar eru öllum opnar.


5.2.2010 15:40

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.