Hafréttarstofnun og Lagadeild semja um 6 milljón króna styrk
Lagadeild og Hafréttarstofnun Háskóla Íslands hafa skrifað undir samning um kostun starfs dósents í auðlindarétti með áherslu á auðlindir hafsins. Samningurinn tekur gildi þann 1. janúar 2010 og greiðir Hafréttarstofnun kr. 2 milljónir árlega til þriggja ára. Pétur Dam Leifsson LL.M. dósent við lagadeild gegnir stöðunni.
Markmið samningsins er að efla kennslu og rannsóknir í auðlindarétti, réttarsviði sem Lagadeild hefur lagt mikla áherslu á á undanförnum árum í samræmi við metnaðarfulla stefnu á þessu sviði. Lagadeild býður upp á sérstakt meistaranám við deildina, LL.M. nám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti, ein lagadeilda á landinu og er kennsla í hafrétti hluti þeirrar námsbrautar.
Á myndinni eru frá vinstri: Pétur Dam Leifsson dósent, Eiríkur Tómasson prófessor og formaður stjórnar Hafréttarstofnunar, Ólafur Þ. Harðarson forseti Félagsvísindasviðs, Björg Thorarensen forseti lagadeildar og Tómas H. Heiðar forstöðumaður Hafréttarstofnunar. Að baki þeim sést brjóstmynd af dr. Hans G. Andersen sem var helsti forystumaður Íslendinga í hafréttarmálum um árabil.
22.12.2009 10:18



