Gullmedalía Evrópsku augnlækna akademíunnar veitt prófessor við HÍ

Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans fékk fyrir helgi gullmedalíu evrópsku augnlækna-akademíunnar (European Academy of Ophthalmology). Þetta var tilkynnt á fundi akademíunnar í Amsterdam á föstudag. Um leið var Einar tekinn sem meðlimur í akademíuna en hún telur 48 evrópska augnlækna og vísindamenn. Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag, Háskóla Íslands, Landspítalann og Einar sjálfan. Rannsóknir Einars á forvörnum gegn blindu í sykursýki hafa vakið athygli víða um heim. Einnig hafa rannsóknir hans á sviði súrefnisefnaskipta augans vakið mikla athygli þar sem leitað er skýringa á því hví leiser meðferð er hjálpleg í augnsjúkdómi í sykursýki og æðalokunum. Rannsóknir Einars og Jóns Atla Benediktssonar, prófessors við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, hafa verið til umfjöllunar víða um heim en þeir tveir hafa í félagi við aðra þróað súrefnismæli fyrir augnbotna sem getur tryggt meðferð við augnsjúkdómum fyrr en áður var kleift. Sprotafyrirtækið Oxymap var stofnað til þróa áfram lausnir sem tengjast þessum rannsóknum þeirra. Þá hefur augnlyfjaþróun Einars Stefánssonar og Þorsteins Loftssonar, prófessors í lyfjafræðideild HÍ, einnig vakið mikla athygli enda opnar sú þróun þeirra möguleika á nýrri og frumlegri meðferð við augnsjúkdómum. Sprotafyrirtækið Oculis hefur verið stofnað um áframhaldandi þróun sem tengist rannsóknum þeirra Einars og Þorsteins. Einar Stefánsson fékk fyrir tæpu ári hin virtu Jules Gonin verðlaun sem eru veitt annað hvert ár þeim einstaklingum í heiminum sem þykja hafa staðið sig öðrum framar í augnrannsóknum og lækningum, sérstaklega á sviði sjónhimnusjúkdóma.


14.6.2009 11:45

deila á facebook
Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...

Tækifæri í samstarfi um...

Aukinn vegur doktorsnáms við Háskóla Íslands og vaxandi samstarf við erlenda háskóla um menntun doktorsnema er meginumfjöllunarefni Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í nýjum pistli sem hún ritar á heimasíðu sína.

Upptaka af málþingi

Gæðanefnd og Kennslumálanefnd Háskóla Íslands ásamt vísindanefnd háskólaráðs stóðu fyrir málþingi um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum föstudaginn 27. janúar. Málþingið fór fram í Öskju og þar ræddu fjórir prófessorar af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands um akademískt frelsi út frá...