Góð viðbrögð við hjálparvakt tannlækna hjá HÍ



Hjálparvakt tannlækna, ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn og unglinga, sem Tannlæknafélaga Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands, stóð fyrir sl. laugardag hlaut mjög góðar viðtökur og tók fjöldi tannlækna, tanntækna og tannlæknanema þátt í verkefninu og gaf vinnu sína.

Á fjórða tug barna og unglinga á aldrinum 3-16 ára nýtti sér þjónustuna og fékk ókeypis tannviðgerðir og forvarnaþjónustu, auk þess sem foreldrar yngri barnanna fengu forvarnafræðslu og upplýsingar og öll börnin voru leyst út með gjöfum, þar á meðal tannbursta og tannkremi.

Þjónustan verður veitt áfram í húsnæði Tannlæknadeildar annan hvern laugardag í apríl og maí, næst 18. apríl milli kl. 10-13. Upplýsingar eru veittar hjá Tannlæknadeild í síma 525 4850.

Nánari upplýsingar (pdf)

Umfjöllun um Hjálparvakt tannlækna í fréttum RÚV