Gerald J. Austin, pólitískur ráðgjafi með hádegisfyrirlestur í HÍ.

Mánudaginn 30. nóvember hélt Gerald J. Austin, pólitískur ráðgjafi frá Bandaríkjunum, opinn hádegis fyrirlestur á vegum Alþjóðamálastofnunar og viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn bar yfirskriftina "The Obama Presidency: A Review of his Historic Campaign and Evaluation of his First Year as President".

Í erindinu var rætt hvernig þjóð sem kaus George W. Bush tvisvar í forsetaembætti gat kosið Barack Obama. Hvernig gat Obama borið sigurorð af Hillary Clinton og John McCain? Og hvernig tókst honum að safna 650 milljónum dollara?

Gerald J. Austin á langan feril að baki sem pólitískur ráðgjafi í Bandaríkjunum. Hann hefur t.d. starfað fyrir Jimmy Carter, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þingmennina Gary Hart, Paul Tsongas, Carol Moseley Braun, Jesse Jackson og Barack Obama. Hann var kosningastjóri fyrir Jesse Jackson í forsetakosningunum 1988 og einn af aðalráðgjöfum Paul Tsongas í prófkjöri Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar 1992. Austin hefur einnig starfað utan Bandaríkjanna sem pólitískur ráðgjafi og við kosningaeftirlit.


30.11.2009 15:15


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.