Gavin Lucas, lektor í fornleifafræði, hlýtur Menningarverðlaun DV

Gavin Lucas
Gavin Lucas

Gavin Lucas lektor í fornleifafræði á Hugvísindasviði Háskóla Íslands og Kristján Árnason, fyrrum dósent í almennri bókmenntafræði, voru meðal þeirra sem tóku við Menningarverðlaunum DV í gær.

Verðlaunin, sem eru veitt í átta flokkum - bókmenntum, byggingarlist, fræðum, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist - eru fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðastliðnu ári en alls voru tilnefningarnar í ár fjörutíu talsins.

Gavin Lucas, lektor í fornleifafræði, og Fornleifastofnun Íslands hlutu verðlaun fyrir Hofstaðaverkefnið og bókina Hofstadir, Excavations of a Viking Age Feasting-hall. Í rökstuðningi dómnefndar segir:

Langt er síðan fyrst var grafið eftir fornleifum í bæjarrústum á Hofstöðum í Þingeyjarsýslu, en 1992 hófst þar mjög ítarleg rannsókn sem Fornleifastofnun Íslands tók að sér að annast. Í áratug var grafið þar af mikilli nákvæmni og nú í árslok 2009 komu niðurstöðurnar út í mjög vandaðri skýrslu á ensku, en með langri íslenskri samantekt í lokin. Auk þess sem þessi rannsókn var í sjálfu sér afar vönduð fræðilega hefur hún skilað að mörgu leyti nýjum og nýstárlegum niðurstöðum um byggð á Íslandi á landnámsöld.

Kristján Árnason, sem gegndi stöðu dósents í almennri bókmenntafræði fram til ársins 2004, hlaut verðlaun í bókmenntum fyrir þýðingu sína á Ummyndunum Óvíds. Í rökstuðningi dómnefndar segir:

Afbragðsgóð þýðing á einu af lykilverkum vestrænna bókmennta hefur litið dagsins ljós í fyrsta sinn. Kristján Árnason hefur skilað þýðingu sem nautn er að lesa og flytur nútímalesendur í goðsagnaheim fornaldar, bæði með þýðingu sinni og greinagóðum inngangi. Ummyndanir Óvíds eru eitt af stærstu og merkustu verkum heimsbókmenntanna sem lesendur og ekki síður önnur skáld og listamenn geta nú notiðí íslenskum búningi.


11.3.2010 10:56


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.