Þjóðarspegillinn X 2009, tíunda félagsvísindaráðstefna Háskóla Íslands, var haldin af félags-og mannvísindadeild, félagsráðgjafardeild, hagfræðideild, lagadeild, sálfræðideild, stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild í Lögbergi, Háskólatorgi og Odda föstudaginn 30. október. Ráðstefnan var vel sótt og voru málstofur á ráðstefnunni 48 og á þeim voru fluttir um 170 fyrirlestrar.
Gunnar Þór Jóhannesson verkefnastjóri ráðstefnunnar segir að fyrirlestrarnir hafi flestir verið í höndum fastráðinna kennara háskólans en síðustu ár hafi þó fjöldi fyrirlesara utan úr samfélaginu, bæði úr öðrum háskólum og atvinnulífinu aukist og þannig var það nú á föstudag. Áhugi erlendra fræðimanna á ráðstefnunni hefur einnig aukist og voru nokkrir þeirra með fyrirlestra á föstudaginn, sagði Gunnar.
Meistara- og doktorsnemar voru með kynningu á rannsóknum sínum á veggspjöldum í Odda og Gimli allan föstudaginn. Í ár var áberandi mikið um að kennarar tvinni verkefni nemenda inn í þennan viðburð, sagði Gunnar.
2.11.2009 09:46
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.
Tveir harðir sigruðu í...
Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...
Tilnefnd til...
Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.
Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...
Hönnunarkeppni verkfræðinema...
Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.
Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...