Fullbright styrkir - opið fyrir umsóknir
Fullbright-stofnunin auglýsir eftir umsóknum um eftirfarandi styrki:
Styrkir fyrir Íslendinga í framhaldsnámi.
Fulbright-stofnunin óskar eftir umsóknum um námsstyrki að upphæð 12.000 dollara hver, til masters- eða doktorsnáms í Bandaríkjunum skólaárið 2010-2011. Tekið er við umsóknum í öllum greinum.
Styrkur fyrir Íslendinga til rannsóknadvalar í Bandaríkjunum
Fulbright-stofnunin veitir 2 rannsóknarstyrki að upphæð 8.000 dollarar hvor.
Styrkirnir eru ætlaðir vísinda- og fræðimönnum til að stunda rannsóknir í Bandaríkjunum skólaárið 2010 - 2011. Skilyrði er að viðkomandi hafið lokið doktorsnámi, sambærilegu námi eða reynslu. Miðað er við að rannsóknardvöl í Bandaríkjunum sé a.m.k. þrír mánuðir.
15.9.2009 09:46



