Laugardaginn 3. október var haldin forritunarkeppni norrænna háskóla, NCPC 2009 (Nordic Collegiate Programming Contest 2009).
Keppni þessi fer fram yfir netið samtímis á öllum Norðurlöndunum og var íslenski hluti hennar haldinn í húsnæði Háskólans í Reykjavík í þetta sinn.
Þrjú íslensk lið tóku þátt, eitt frá Háskóla Íslands og tvö frá Háskólanum í Reykjavík. Þátttakendur fengu fimm klukkustundir til að leysa sem flest verkefni úr verkefnasafni sem haldið var leyndu uns keppnin hófst. Lið Háskóla Íslands var skipað þeim Herði Frey Yngvasyni og Pétri Orra Ragnarssyni
stærðfræðinemum, en Hafsteinn Einarsson forfallaðist því miður úr liðinu vegna veikinda.
Lið Háskóla Íslands varð efst af íslensku liðunum. Þeir leystu 2 dæmi af 10 og lentu í 126. sæti af 187 á Norðurlöndunum. Liðsmenn eru á öðru ári í HÍ og voru að keppa í fyrsta skipti í þessari keppni.
5.10.2009 14:42
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.
Tveir harðir sigruðu í...
Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...
Tilnefnd til...
Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.
Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...
Hönnunarkeppni verkfræðinema...
Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.
Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...