Fjölsótt ráðstefna um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum
Mikill mannfjöldi hefur verið á Háskólatorgi í dag og í gær en þá stóð þar yfir ráðstefna um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum. Að ráðstefnunni standa læknadeild, tannlæknadeild, lyfjafræðideild, hjúkrunarfræðideild, matvæla- og næringarfræðideild, sálfræðideild, námsbrautir í sjúkraþjálfun, og geisla- og lífendafræði, Miðstöð í lýðheilsuvísindum og Tilraunastöð Háskóla Ísland.
Gríðarlega margir áhugaverðir fyrirlestrar voru á dagskrá en á meðal þess sem fjallað var um var uppkoma og framrás krabbameins; faraldsfræðilegar vísbendingar um áhrif streitu; börn, ungmenni og heilsa; notkun ættfræðilegra gagna til rannsókna og þróun á erfðamengi Íslendinga og algengi spilafíknar meðal fullorðinna og unglinga á Íslandi.
Mikill fjöldi fylgdist einnig með þegar rannsóknir voru kynntar á veggspjöldum á 1. hæð Háskólatorgs og er torgið nú að sanna sig sem einn allra áhugaverðasti staður landsins til sýninga- og ráðstefnuhalds.
Þetta er í fjórtánda sinn sem ráðstefnan er haldin en umsjón með henni hafði Vísindanefnd læknadeildar og fulltrúar annarra deilda, námsbrauta og stofnana við Háskóla Íslands.

