Fjölmenni á Föruneyti barnsins

Hátt á þriðja hundrað manns sóttu málþing Menntavísindasviðs sem fram fór í 13. sinn dagana 29. og 30. október undir yfirskriftinni Föruneyti barnsins - velferð og veruleiki. Dagskráin var afar fjölbreytt og yfir hundrað erindi á boðstólum. Fjallað var um menntun og velferð frá mörgum ólíkum sjónarhornum. Meðal umfjöllunarefna voru viðbrögð barna við kreppu, lífsstíll 9 og 15 ára Íslendinga, læsi barna með málþroskafrávik, hverjum treysta megi fyrir uppeldi og menntun barna, hvernig velferðarkerfið mætir þörfum ungra fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra, hvaða áhrif kreppan hafi á siðavendni grunnskólans og sjálfbæra þróun og umhverfisvitund.

Foreldrar vannýtt auðlind í skólastarfi
Aðalfyrirlesari á málþinginu var Dr. Charles Desforges prófessor emeritus við Háskólann í Exeter. Dr. Desforges fjallaði um áhrif íhlutunar foreldra á gengi nemenda í námi. Hann talaði um foreldra sem auðlind í skólastarfinu sem væri víða vannýtt. Niðurstöður rannsókna hans og fleiri í mörgum löndum sýna að áhrif foreldra skipta langmestu máli þegar kemur að árangri barna í námi. Hann sagði gífurlega mikilvægt að foreldrar taki þátt í námi barnanna og að samstarf heimilis og skóla sé ríkulegt.

Dr. Charles Desforges starfar nú sem sjálfstæður rannsakandi og ráðgjafi í menntunarfræðum, aðallega á sviði náms og kennslu, íhlutunar foreldra og stjórnunar í skólum. Hann hefur veitt ráðgjöf um rannsóknir til ríkistjórna bæði í Bretlandi og í öðrum löndum. Þá vann hann að stefnumótun varðandi menntarannsóknir í Bretlandi á vegum National Education Research Forum (NERF). Hann hefur skrifað bækur og ótal greinar á sviði náms og kennslu og ritstýrði British Journal of Educational Psychology í fimm ár. Árið 2004 hlaut Dr. Desforges heiðursverðlaun OBE (Order of the British Empire), sem Englandsdrottning veitir, fyrir störf í þágu menntamála.

Málþingið í Samfélaginu í nærmynd
Samfélagið í nærmynd sendi beint út frá bókasafni Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Þar voru teknir tali fyrirlesarar af málþinginu. Rætt var við Hrafnhildir Ragnarsdóttur prófessor um rannsókn hennar á málþroska, sjálfsstjórn og læsi fjögurra og sex ára barna, Gretar L. Marinósson prófessor um siðavendni í grunnskólum og hvaða áhrif kreppan hafi á hana, Þórdísi Þórðardóttur lektor um mismunandi menningu í farteski leikskólabarna, Gunnar Finnbogason prófessor um viðbrögð við kreppu og Erling Birgir Richardsson meistaranema við Menntavísindasvið.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn

Viðurkenning fyrir meistaraprófsverkefni
Við setningu málþingsins voru veitt verðlaun rannsóknaráðs Menntavísindasviðs fyrir bestu meistaraprófsritgerðina skólaárið 2008-2009. Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir hlaut verðlaun fyrir verkefnið Holdafar, hreyfing og heilsutengd lífsgæði eldri aldurshópa – Sex mánaða íhlutunarrannsókn. Leiðbeinandi Guðrúnar var Erlingur Jóhannsson prófessor, sérfræðiálit veitti Pálmi Jónsson dósent og og öldrunarlæknir og prófdómari var Júlíus Björnsson forstöðumaður Námsmatsstofnunar. Formaður rannsóknarráðs, Steinunn Gestsdóttir, afhenti Guðrúnu viðurkenninguna.


2.11.2009 11:59

deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...