Fjölmenn nemendaráðstefna í hagnýtri menningarmiðlun
Föstudaginn 6. nóvember 2009 var haldin nemendaráðstefna í námskeiðinu Miðlunarleiðir í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands sem jafnframt var hluti af námsmati í námskeiðinu. Ráðstefnan stóð frá 9:30 til 16:30 og var í aðalsal Þjóðmenningarhússins, hinum svokallaða bókasal sem áður var lestrarsalur Landsbókasafnsins. Ráðstefnan heppnaðist vel og voru flutt alls 32 erindi, hvert öðru fróðlegra.
Fjölmargar myndir frá nemendaráðstefnunni eru á vef hagnýtrar menningarmiðlunar www.hmm.hi.is og þar er einnig hægt að sjá yfirlit um dagskrána.
12.11.2009 16:57



