Er hægt að vera stelpuleg í bleiku pilsi og vera um leið prakkari?

Þurfa stelpurnar að haga sér eins og strákar til að vera prakkarar?  Er hægt að vera stelpuleg stelpa í bleiku pilsi og vera um leið prakkari?

Á fimmtudaginn mun Helga Birgisdóttir, doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, leita svara við þessum spurningum. Hún mun þá flytja erindið „Að haga sér eins og stelpa: Stelpur í íslenskum prakkarabókum þá og nú.“ 

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 132 í Öskju milli kl. 12:25 og 13:25. 

Fyrirlesturinn er á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, en þetta er fyrsti hádegisfyrirlestur vormisseris.  Í fyrirlestrinum mun Helga fjalla um íslenskar prakkarabækur, sem margir nutu í æsku og nýjar kynslóðir drekka enn í sig.  Bornar verða saman svokallaðar „drengjabækur" og „stúlknabækur."

„Ég mun bera saman hefðbundnar prakkarabækur og svo stelpuprakkarabækur. Skoða hvort það sé hægt að vera prakkari og stelpa eða hvort þær þurfi að vera strákastelpur,“ segir Helga Birgisdóttir.

Langflestar íslenskar prakkarabækur hafa verið drengjabækur, skrifaðar í anda Nonnabókanna eftir Jón Sveinsson. Þær komu upphaflega út á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þegar eitthvað spennandi gerist í sögunum eru strákarnir iðulega bæði í aðal- og aukahlutverkum en stelpurnar hafa mun minna mikilvæg hlutverk í söguþræðinum.

Á síðustu árum, aftur á móti, hefur nokkuð verið gefið út af bókum um sjálfstæðar og skemmtilegar stelpur. Í þessum hópi er gleðisprengjan Fíasól, sköpunarverk Kristínar Helgu Gunnarsdóttur.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa nýju kvenkyns prakkara. Stelpuskott á borð við Fíusól verða borin saman við stúlkur í eldri prakkarabókum. Spurt verður hvort þessar nútímalegu stúlkur taki einfaldlega við hlutverki drengjanna úr eldri bókunum eða hvort þær eigi sér einhverja sérstöðu.

Viðtal er við Helgu Birgisdóttur á baksíðu Morgunblaðsins í dag.


26.1.2010 10:50


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.