Eldri borgarar miðla til barna
Rauði Kross Íslands (RKÍ) stendur í samvinnu við Öldrunarráð Íslands og félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands fyrir óvenjulegum sumarnámskeiðum fyrir börn með afar fjölbreyttri dagskrá undir yfirskriftinni Gleðidagar - ungur nemur, gamall temur. Á námskeiðunum munu eldri borgarar leiðbeina og njóta aðstoðar nemenda í BA námi í félagsráðgjöf. Samstarfið er hluti af sumarnámskeiðinu Sjálfboðastarf: Sérverkefni sem nemendum félagsráðgjafardeildar var boðið upp á nú í sumar.
Alls hafa um 11 nemendur deildarinnar setið námskeiðið í sumar og tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum og námskeiðum RKÍ nú í sumar við góðan orðstír.
Umsjónarkennari sumarnámskeiðsins er Hervör Alma Árnadóttir, aðjúnkt í félagsráðgjöf.
2.7.2009 11:17



