Eldhugar, frumkvöðlar, nýsköpun og sprotar í HÍ á miðvikudag

Nýsköpunarmessa Háskóla Íslands fer fram miðvikudaginn 18. nóvember. Á henni verða ýmis sprotafyrirtæki kynnt sem eiga rætur sínar að rekja til Háskóla Íslands. Gestir eiga því kost á að kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fer fram hjá þessum fyrirtækjum og hvernig þau hafa náð að hasla sér völl.

Einnig verður boðið upp á fyrirlestra og örkynningar á sprotafyrirtækjum. Við sama tækifæri verða Hagnýtingarverðlaun HÍ, veitt.

Hagnýtingarverðlaunin eru endapunkturinn á samkeppni sem er liður í viðleitni Háskóla Íslands til að hagnýta þekkingu sem verður til innan veggja skólans. Keppnin hefur árlega laðað fram fjölmargar hugmyndir sem bera vott um grósku og nýsköpun innan háskólasamfélagsins og hjá fyrirtækjum tengdum HÍ. Nýsköpunarmessan fer fram á Háskólatorgi.

Dagskrá:

15 - Kynningarbásar opnaðir á Háskólatorgi

15.45 - Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP og fyrrverandi nemandi Háskóla Íslands, flytur erindi Örkynningar á sprotafyrirtækjunum Oxymap, Clara, Hugarheill og Tunerific og kynning á verkefninu Fyrirmyndarkvenfrumkvöðlar Íslands.

16.30 - Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands veitt. Rögnvaldur Ólafsson, formaður dómnefndar kynnir verðlaunatillögur. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhendir verðlaunin.

17-18 - Kynningarbásar opnir og boðið upp á léttar veitingar.

Nýsköpunarmessan er hluti af Alþjóðlegri athafnaviku sem fer fram 16.-22. nóvember samtímis í meira en 100 löndum.

Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið, senda jákvæð og uppbyggileg skilaboð til Íslendinga og gefa þjóðinni tilefni til að horfa björtum augum fram á veginn.

Allir eru velkomnir og eru nemendur HÍ sérstaklega hvattir til að mæta.

Sprotafyrirtæki sem taka þátt eru þessi: Hugarheill, Oxymap, Clara, Tunerific (Gítarstillir), Lífeind, Icelandic Online, Remo, Samhengisháð ritvilluleit og Risk ehf

Fyrirtæki og stoðeiningar sem taka þátt: Rannsóknarþjónusta HÍ, Upplýsingastofa um einkaleyfi, Innovit, Einkaleyfastofa, Árnason-Faktor og Impra.


15.11.2009 01:41

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.