Einar Mäntylä gestadósent við Lyfjafræðideild

Þann 30. apríl sl. var undirritaður samningur á milli Lyfjafræðideildar Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og Dr. Einars Mäntylä um gestadósentstöðu við Lyfjafræðideild. Markmið samningsins er að styrkja kennslu og rannsóknir í lyfjafræði og skyldum greinum við Háskóla Íslands.

Á gildistíma samningsins, sem gerður er til 31. júlí 2014, munu Lyfjafræðideild og Einar m.a. hafa samstarf um rannsóknir auk þess sem Einar mun koma að kennslu  á grunn- og framhaldsstigi, og leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum.

Dr. Einar Mäntylä er fæddur 1963. Hann lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1988 og doktorsprófi í plöntusameindaerfðafræði frá Landbúnaðarháskólanum í Uppsölum, Svíþjóð  1997.  Eftir tvö ár sem nýdoktor í Svíþjóð fluttist Einar til Íslands og byggði m.a. upp aðstöðu til rannsókna í plöntulíftækni við Rannsóknastofnun Landbúnaðarins að Keldnaholti. Árið 2000 stofnaði Einar ásamt nokkrum félögum fyrirtækið ORF Líftækni sem hefur verið mjög virkt í rannsóknum og tækniþróun og er í örum vexti. Fyrirtækið fæst við framleiðslu verðmætra próteina í byggi, sem eru m.a. notuð til rannsókna í líf- og læknisvísindum, í snyrtivörur og í lyfjaiðnaði. Einar veitir forstöðu  vísindasamvinnu- og hugverkadeild fyrirtækisins.


8.5.2009 15:38

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.