Dr. Sigrún Júlíusdóttir hlýtur heiðursviðurkenningu Félagsráðgjafafélags Íslands
Síðastliðinn föstudag var úhlutað úr vísindasjóði Félagsráðgjafafélags Íslands. Af því tilefni að 20 ár eru liðin frá stofnun sjóðsins ákvað Vísindanefnd félagsins að veita sérstaka heiðurviðurkenningu fyrir framlag til vísinda á sviði félagsráðgjafar.
Heiðursviðurkenningin komu í hlut Dr. Sigrúnar Júlíusdóttur, prófessors í félagsráðgjöf fyrir rannsókna- og ritstörf á tæplega 40 ára félagsráðgjafarferli.
Sigrún Júlíusdóttir lauk félagsráðgjafarprófi 1970 frá Lundi og fil. kand prófi í félagsfræði frá Stokkhólmsháskóla 1972, meistaraprófi frá Michigan háskóla í Bandaríkjunum í hjóna- og fjölskyldumeðferð 1978, handleiðslunámi 1985 og löggiltu réttindanámi í einstaklingsmeðferð (psychoterapy) frá sálfræðideild háskólans í Gautaborg 1988. Hún lauk doktorsrprófi í félagsráðgjöf frá félagsráðgjafardeild háskólans í Gautaborg árið 1993. Sigrún hefur langa- og víðtæka starfsreynslu og hefur starfið við barnavernd í Reykjavík, almenna félagsráðgjöf á sjúkrahúsi, félagsþjónustu, unglingageðdeild og við réttarfélagsráðgjöf hjá skilorðseftirliti Stokkhólmsborgar. Sigrún starfaði sem yfirfélagsráðgjafi við Kleppspítala/ Geðdeild Landspítalans frá árinu 1972 og til 1991 er hún hóf störf sem lektor við félagsráðgjöf við HÍ. Sigrún er nú prófesssor við félagsráðgjafardeild HÍ og formaður stjórnar Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd. Yfirlit yfir rannsóknir Sigrúnar má finna á vef félagsráðgjafardeildar www.felagsradgjof.hi.is.
Við úthlutun styrkja hlutu meðal annars núverandi og fyrrverandi nemendur deildarinnar í MA og doktorsnámi styrk vegna rannsókna sinna. Nánari upplýsingar um styrkþega er að finna á vef Félagsráðgjafafélags Íslands
21.9.2009 12:02



