Dr. Guðný Björk Eydal hlaut framgang í starf prófessors
Dr. Guðný Björk Eydal hlaut á dögunum framgang í starf prófessors við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Guðný Björk hóf störf við Háskóla Íslands sem stundakennari árið 1997 við félagsvísindadeild skólans, hún var lektor í félagsráðgjöf 1999-2006 og dósent frá árinu 2006. Áður en Guðný kom til starfa við Háskóla Íslands starfaði hún meðal annars hjá Sociologiska Institutionen, Göteborgs Universitet.
Guðný Björk lauk BA prófi í félagsfræði og starfsréttindanámi í félagsráðgjöf árið 1986 frá Háskóla Íslands. Þá hélt hún til náms í Svíþjóð þar sem hún lauk framhaldsnámskeiði í félagsráðgjöf um fjölskyldur og uppeldi árið 1992. Hún lauk MA prófi í félagsráðgjöf frá Göteborgs Universitet árið 1993 og doktorsprófi frá sama skóla árið 2005.
Rannsóknarsvið Guðnýjar er velferðarkerfið: félagsmál og stefnumótun með aðaláherslu á fjölskyldustefnu, félagsmálastefnu, umönnunarstefnu (umönnun barna: fæðingarorlof, leikskólar og heimagreiðslur), félagsþjónusta, fátækt , barnastefna og áfallastjórnun.
Nánari upplýsingar um náms- og starfsferil Dr. Guðnýjar Bjarkar Eydal
11.11.2009 14:28



