Doktorsvörn í líf- og læknavísindum frá Læknadeild Háskóla Íslands

Föstudaginn 9. október nk. fer fram doktorsvörn frá Læknadeild Háskóla Íslands. Þá ver Stefán Ragnar Jónsson líffræðingur doktorsritgerð sína " The Antiretroviral APOBEC3 Proteins of Artiodactyls" (Íslenskur titill: Retróveiruhindrinn APOBEC3 í klaufdýrum).

Andmælendur eru Dr. Klaus Strebel, National Institute of Allergy and Infectious Diseases, NIH, í Bethseda í Bandaríkjunum og Dr. Jón Jóhannes Jónsson, dósent við Læknadeild HÍ. Leiðbeinendur Stefáns voru Dr. Valgerður Andrésdóttir, vísindamaður á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum og Dr. Reuben S. Harris, dósent, Department of Biochemistry, Biophysics and Molecular Biology, University of Minnesota. Aðrir í doktorsnefnd voru Dr. Ólafur S. Andrésson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, Dr. Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild HÍ, og Guðmundur Pétursson, prófessor emeritus, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.

Dr. Guðmundur Þorgeirsson, prófessor og forseti Læknadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni sem fer fram í stofu 132 í Öskju og hefst kl. 14:00

Ágrip úr rannsókn

Lífverur hafa frá örófi alda þróað með sér varnir gegn retróveirusýkingum. Dæmi um slíkt eru APOBEC3 próteinin en þau eru fjölskylda af-aminasa sem einungis er að finna í spendýrum. Mörg þessara próteina geta hindrað retróveirur með því að af-aminera cýtósín í úrasil í erfðaefni veirunnar meðan á víxlritun stendur. Lentiveirur, m.a. HIV hafa þróað mótsvar við þessu, próteinið Vif (virion infectivity factor) sem stuðlar að niðurbroti APOBEC3 próteina. Í þessu verkefni voru APOBEC3 gen og prótein klaufdýra (nautgripa, kinda og svína) klónuð og virkni og sértækni þeirra athuguð. APOBEC3 prótein klaufdýra gátu hindrað eftirmyndun HIV-1 og reyndust ónæm fyrir áhrifum Vif próteins HIV-1.
Raðgreining erfðamengja manna og músa hefur leitt í ljós mikinn mun í fjölda APOBEC3 gena milli dýrategunda, frá einu í músum til sjö í mönnum. Leitað var í DNA söfnum sem innihéldu litninga DNA klaufdýra og APOBEC3 gen þessara tegunda fullraðgreind. Reyndust kindur og nautgripir hafa þrjú APOBEC3 gen en svín tvö. Þessar niðurstöður benda til þess að sameiginlegur forfaðir klaufdýra hafi haft þrjú APOBEC3 gen og þriðja genið hafi tapast snemma í þróun suidae ættkvíslarinnar.

Tegundarsérhæfni leikur stórt hlutverk í samskiptum sýkils og hýsils. APOBEC3 prótein virðast veita breiðvirka vernd gegn retróveirum, en hver veira hefur þróað mótleik sem er sérsniðin að APOBEC3 próteinum viðkomandi hýsils. Tjáning á APOBEC3 próteinum úr ólíkum tegundum gæti því hugsanlega dregið úr veirusýkingum milli tegunda. Skortur á líffærum til líffæragjafa hefur leitt af sér notkun efniviðar úr öðrum dýrategundum og er helst litið til svína. Veirusýkingar hafa verið til umræðu eftir að sýnt var fram á að innrænar retróveirur úr svínum (PERV) geta sýkt mannafrumur í frumurækt. Við athuguðum hvort tjáning á APOBEC3 próteini úr annarri dýrategund gæti hindrað færslu veira frá svínum til manna. Samræktunartilraunir voru notaðar til að sýna fram á að stöðug tjáning manna APOBEC3G í veiru-framleiðandi svínafrumum kom í veg fyrir sýkingu yfir í mannafrumur. Þetta bendir til að nota mætti tjáningu próteina milli tegunda til framleiðslu á hættuminni efnivið fyrir líffæragjafir.

Rannsóknirnar voru unnar á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og við Lífefna- og sameindalíffræðideild University of Minnesota

Um doktorsefnið

Stefán Ragnar Jónsson er fæddur árið 1977. Hann lauk stúdentsprófi frá náttúrufræðibraut Menntaskólans í Kópavogi árið 1997 og B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands í júní 2000. Hann hóf meistaranám við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2001 og doktorsnám við sömu deild 2004. Foreldrar Stefáns eru Jón Kr. Stefánsson lyfjafræðingur og Hanna G. Ragnarsdóttir vefnaðarkennari.


7.10.2009 09:55


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.