Doktorsvörn í líf- og læknavísindum frá Læknadeild Háskóla Íslands
Mánudaginn 5. október nk. fer fram doktorsvörn frá Læknadeild Háskóla Íslands. Þá ver Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir líffræðingur doktorsritgerð sína "Antimicrobial resistant bacteria in production animals in Iceland - possible transmission to humans?" (Íslenskur titill: Sýklalyfjaónæmi baktería í búfénaði á Íslandi - mögulegur flutningur til manna?).
Andmælendur eru Dr. Marianne Sunde, vísindamaður við bakteríudeild Dýrasjúkdómastofnunarinnar í Osló, og Dr. Magnús Gottfreðsson, prófessor við Læknadeild HÍ og smitsjúkdómalæknir á Landspítala. Leiðbeinendur Þórunnar voru Dr. Eggert Gunnarsson, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ og deildarstjóri bakteríu-, sníkjudýra- og meinafræðideildar Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum, og Dr. Karl G. Kristinsson, prófessor við Læknadeild HÍ og yfirlæknir á sýklafræðideild Landspítala. Aðrir í doktorsnefnd voru Dr. Vala Friðriksdóttir, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, og Dr. Frank M. Aarestrup, prófessor við matvælastofnun Tækniháskóla Danmerkur (DTU).
Dr. Guðmundur Þorgeirsson, prófessor og forseti Læknadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst kl. 13:00
Ágrip úr rannsókn
Tíðni baktería sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum fer vaxandi, bæði meðal manna og dýra og getur valdið vandkvæðum við meðhöndlun sýkinga. Megin markmið þessarar rannsóknar var að ákvarða tíðni ónæmra baktería í sláturdýrum á Íslandi og meta hvort og þá í hve miklum mæli þessar bakteríur berast frá dýrum til manna, þá aðallega með matvælum. Rannsakaðir voru Salmonellu og Campylobacter stofnar sem einangraðir voru í reglulegu eftirliti með sláturdýrum á árunum 2001-2005. Einnig voru rannsakaðir E. coli stofnar sem einangraðir voru úr svínum, kjúklingum, svínakjöti, kjúklingakjöti, kjúklingafóðri, starfsmönnum sláturhúsa og sjúklingum utan sjúkrahúsa á árunum 2005-2008.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að tíðni sýklalyfjaónæmra Salmonella og Campylobacter stofna í kjúklingum og svínum á Íslandi er frekar lág. Hinsvegar er tíðni sýklalyfjaónæmis meðal E. coli stofna úr sláturdýrum og matvælum nokkuð há, sérstaklega í kjúklingum og kjúklingakjöti, en engin sýklalyf eru notuð í kjúklingaeldi á Íslandi. Niðurstöðurnar styðja ennfremur þá tilgátu að ónæmar bakteríur geti borist með fóðri í kjúklinga og að kjúklingar og afurðir þeirra geti verið uppspretta ónæmra E. coli stofna í mönnum. Áframhaldandi eftirlit er mikilvægt og nauðsynlegt er að rannsaka betur uppruna ónæmra stofna og mögulegan flutning þeirra til manna.
Rannsóknirnar voru unnar á sýkladeild Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og á sýklafræðideild Landspítalans.
Um doktorsefnið
Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir er fædd árið 1979 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í desember 1998 og B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands í júní 2003. Hún hóf meistaranám við Læknadeild Háskóla Íslands haustið 2003 og doktorsnám við sömu deild haustið 2005. Samhliða náminu hefur Þórunn unnið í hlutastarfi á sýkladeild Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum. Þórunn er dóttir Ingibjargar Þ. Rafnar, lögfræðings, og Þorsteins Pálssonar, lögfræðings. Sambýlismaður hennar er Höskuldur Daði Magnússon, blaðamaður, og eiga þau von á sínu fyrsta barni.
30.9.2009 08:55



