Danskan vinsæl hjá krökkunum í Hafnarfirði

Það komu góðir gestir í heimsókn í Háskóla Íslands þriðjudaginn 10. nóvember. Á ferðinni voru um 20 nemendur í 10. bekk frá Lækjarskóla í Hafnarfirði ásamt kennara sínum, Margréti Þórisdóttur, sem voru hingað komin til að kynna sér nám í dönsku. Hópurinn var aðallega skipaður stelpum en tveir strákar voru með í för. Flest þeirra voru að koma í fyrsta sinn í heimsókn til Háskóla Íslands.

Danskan er spennandi tungumál í augum nemenda í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Námskeiðið sem krakkarnir eru í heitir „Vi rejser sammen“ eða „Við ferðumst saman“ og er vinsælasta valnámskeiðið hjá 10. bekk. Að sögn Margrétar er námskeiðið afar fjölbreytt. Krakkarnir liggja ekki aðeins yfir bókunum heldur eiga ýmis stefnumót við samfélagið. Auk Háskóla Íslands heimsækja þau framhaldsskóla og kynna sér dönskunám þar, þau munu hitta jafnaldra sína frá Danmörku í skólabúðum í Kaldárseli og heimsækja Norræna húsið svo eitthvað sé nefnt. Umfram allt gefur námskeiðið þeim frábært tækifæri til að æfa sig í að tjá sig á dönsku, en sá þáttur hefur kannski verið nokkuð vanræktur í tungumálakennslu hér á landi. Skólastjóri Lækjarskóla, Haraldur Haraldsson, hefur stutt dyggilega á bak við þetta verkefni sem hefur skipt miklu máli að sögn Margrétar kennara. Þegar krakkarnir eru spurðir af hverju þeir völdu dönskunámskeið sem valgrein þá stóð ekki á svarinu. Þeim fannst það bara svo spennandi og fjölbreytt!

Auður Hauksdóttir, dósent, og Þórhildur Oddsdóttir, aðjunkt, tóku á móti hópnum í stofu 220 í Aðalbyggingu og kynntu þeim uppbyggingu námsins og hvernig þær sjálfar kynntust dönskunni, m.a. í gegnum Andrés Önd, kvikmyndir og lestur bóka og vikublaða, hvar þær menntuðu sig hér heima og í Danmörku og hvaða starfsmöguleika danskan býður upp á. Krakkarnir voru vel með á nótunum og báru fram margar skemmtilegar spurningar, eins og:

  • Er det sværere at lære dansk end islandsk?
  • Er dansk det sjoveste sprog i verden?
  • Hvorfor skal dansk eller et nordisk sprog være et obligatorisk sprog?
  • Hvilket ord er dit yndlingsord på dansk?
  • Hvad synes du om dit job? Kan du lide det? 

Auður svaraði spurningum eftir bestu getu og úr spannst skemmtileg kennslustund sem vitaskuld fór eingöngu fram á dönsku.

Nemendurnir heimsóttu einnig aðrar byggingar HÍ og enduðu á að líta við í kennslustund í dönskum bókmenntum í Nýja Garði. Þessi heimsókn var sérlega skemmtileg og vonandi eigum við eftir að sjá fleiri grunnskólanemendur sýna svona skemmtilegt frumkvæði að kynna sér lífið í Háskólanum.

Á myndinni hér að ofan má sjá nemendur ásamt Margréti kennara og Auði og Þórhildi frá HÍ.


11.11.2009 10:46

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.