Burðarvaki reyndist bestur á Nýsköpunarmessunni

Í dag stóð Háskóli Íslands fyrir sérstakri Nýsköpunarmessu, m.a. til að sýna hversu mikilvægt það er hverju samfélagi að stuðla að vísindarannsóknum og nýsköpun. Viðburðurinn í Háskólanum í dag var hluti af alþjóðlegri athafnaviku sem fer fram samtímis í meira en 100 löndum.

Mikið fjölmenni mætti á Háskólatorg í því skyni að kynnast því hvernig litlar hugmyndir geta orðið að traustum og framsæknum fyrirtækjum sem skapa fjölda starfa með umtalsverða veltu. Við sama tækifæri voru Hagnýtingarverðlaun HÍ veitt og hlaut Burðarvaki Hafrúnar Hauksdóttur fyrstu verðlaun.

Þessa dagana er mörgum tíðrætt um nýsköpun sem lykil að nýrri atvinnuþróun enda glíma Íslendingar nú við eftirköst bankahrunsins og þurfa að leita nýrra tækifæra. Dag hvern fer fram nýsköpun við Háskóla Íslands og var tugur sprotafyrirtækja með kynningar á Háskólatorgi auk þess sem Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP og fyrrverandi nemi í HÍ, rakti hvernig fyrirtæki hans hefur náð að hasla sér völl eftir að hafa verið lítill sproti sem byggði á góðri hugmynd.

Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands voru afhent á Nýsköpunarmessunni en að þessu sinni bárust 18 tillögur sem er met. Hagnýtingarverðlaunin eru veitt þeim aðilum innan Háskólans sem draga fram í dagsljósið hugmyndir sem hagnýta má, m.a. í atvinnurekstri. Burðarvaki Hafrúnar Hauksdóttur hlaut fyrstu verðlaun. Hafrún er doktorsnemi í verkfræði. Hugmyndin snýst um þróun og smíði á tæki sem fylgist með meðgöngu kúa. Samkvæmt rannsóknum deyja um 15% kálfa á meðgöngu.

Hér er því um verulega hagsmuni að ræða en öll þróun aðferða og tækja til þess að fylgjast með kelfdum kúm, í því skyni að draga úr kálfadauða, er brýnt verkefni. Önnur verðlaun hlaut hugmyndin Skólapúlsinn. Höfundar eru Almar Miðvík Halldórsson og Kristján Ketill Stefánsson, báðir nemar á Menntavísindasviði HÍ.

Hér er um að ræða aðferð sem metur námsframvindu nemenda og snýst um að meta skólalíf og bæta það. Flæðigildran er hugmyndin sem hreppti þriðju verðlaun. Hún byggist á vinnu nema í verkfræði, þeirra Stefáns Hjalta Garðarssonar, Darra Kristmundssonar, Hagalín Á. Guðmundssonar og Birkis Veigarssonar. Þeir eru allir nemendur við Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Flæðigildrunni er ætlað að leysa tiltekið tæknilegt framleiðsluvandamál í iðnaði. Kítín er unnið úr rækjuskel en rækjan kemur frosin í plastpakkningum í vinnslustöð. Plasttrefjar eiga það til að berast í framleiðsluferlið og menga framleiðsluna. Höfundar hugmyndarinnar þróuðu skilju til að fyrirbyggja þetta. Sérstök heiðursverðlaun hlaut Páll Theódórsson, eðlisfræðingur við Raunvísindastofnun, fyrir rannsóknir sínar á geislavirkni og notkun hennar til aldursgreininga.


18.11.2009 19:00

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.