Brautskráning 27. febrúar 2010

27. febrúar síðastliðinn brautskráðist 21 kandídat frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Með meistaragráðu brautskráðust 7 manns, 7 með diplómagráðu á framhaldsstigi og 7 með BA-gráðu í stjórnmálafræði.

Af þeim sem brautskráðust úr meistaranámi voru tveir kandídatar með MA í alþjóðasamskiptum og fimm með MPA í opinberri stjórnsýslu. Kandídatar með diplómagráðu komu flestir úr námi í opinberri stjórnsýslu, eða fimm manns. Einn kandídat brautskráðist með diplóma í alþjóðasamskiptum og annar með diplóma í hagnýtri jafnréttisfræði.


2.3.2010 12:11


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...