Bókasamningur við breskan útgefanda í höfn
Dr. Haukur Ingi Jónasson og Dr. Helgi Þór Ingason undirrituðu í síðustu viku útgáfusamning við breska útgáfufyrirtækið Gower Publishing sem er hluti af Ashgate Publishing Group sem gefur út bækur bæði í Bretlandi og í Bandaríkjunum. Bókin ber vinnutitilinn Project Ethics, The Critical Path to Development og hún fjallar um hagnýta miðlun siðfræðinnar inn í heim athafnalífs, tækni og verkvísinda. Bókin verður gefin út í ritröðinni Advances in Project Management en ritstjórn hennar leggur sig fram um að grípa áhugaverðar nýjunar í faginu og gera þeim skil. Haukur og Helgi eru kennarar við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og eru helstu hvatamennirnir að stofnum Meistaranáms í verkefnastjórnun (MPM) við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild sviðsins. Reiknað er með að bókin komi út á árinu 2011.
15.3.2010 10:37




