Blóðgjafamánuður Háskóla Íslands

Blóðgjafamánuður Háskóla Íslands

Lýðheilsufélag læknanema efnir til Blóðgjafamánaðar Háskóla Íslands nú í mars og er það í annað skipti sem félagið stendur fyrir slíku átaki, í samvinnu við Blóðbankann, Vodafone og Stúdentaráð HÍ.

Tilgangur Blóðgjafamánaðar HÍ er að hvetja háskólanema til að gefa blóð í nafni nemendafélags síns eða námsgreinar. Söfnunin fer aðallega fram í Blóðbankanum, en blóðbankabíllinn mun einnig mæta á háskólasvæðið; þann 3. mars verður hann á bílastæðinu við Háskólabíó, og 15. mars við Odda.

Það nemendafélag sem gefur hlutfallslega mest blóð hlýtur farandbikar blóðgjafamánaðarins að launum. Verður hann afhentur í lokahófi átaksins. Síðast skilaði þetta átaksverkefni tæpum 200 blóðgjöfum, en nú er markmiðið að gjafirnar verði enn fleiri.

Blóðbankinn þarf að meðaltali 70 blóðgjafir á dag til að anna eftirspurn. Þróunin er hins vegar sú að þörfin fyrir blóðgjafir fer vaxandi samhliða því að framboðið fer minnkandi. Blóðbankinn þarf um 2.000 nýja blóðgjafa á ári, og því er mikilvægt að ungt fólk kynnist starfseminni vel og byrji að gefa blóð. Lýðheilsufélagið vonast því til að þessu átaki takist að virkja háskólanema sem reglulega blóðgjafa svo Ísland geti haldið áfram að vera sjálfu sér nægt um blóðhluta.

Frekari upplýsingar má finna á http://www.blodbankinn.is og á facebook-síðu átaksins, http://www.facebook.com/group.php?gid=358094801140.


1.3.2010 10:42


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...