Baráttan gegn loftslagsbreytingum: Sökkva Maldíveyjar?
Forseti Maldíveyja, Mohamed Nasheed, heldur fyrirlestur í boði forseta Íslands og í samvinnu við Háskóla Íslands laugardaginn 13. mars kl. 13.15.
Mohamed Nasheed mun tala í fyrirlestrasal Öskju við Sturlugötu og heitir erindið „Maldives: Fighting climate change from the frontline“. Mohamed Nasheed er heimsþekktur fyrir baráttu sína gegn loftslagsbreytingum. Hætt er við að þær komi sérlega illa við heimaland hans, Maldíveyjar í Indlandshafi, þar sem þær eru mjög láglendar og að sama skapi viðkvæmar fyrir hækkun yfirborðs sjávar.
Í raun er öryggi Maldíveyja ógnað vegna hækkunar sjávar, sem skýrist ekki síst af bráðnun íss á norðurslóðum og víðar. Óttast er að eyjarnar geti jafnvel sokkið á næstu áratugum.
Mohamed Nasheed, forseti Maldíveyja, hefur að síðasta kastið náð athygli heimsbyggðarinnar á þessari aðsteðjandi hættu. Hann hélt t.d. fyrir skömmu ríkisstjórnarfund á hafsbotni til að vekja athygli á þeirri hættu sem Maldíveyjum er búin.
Segja má að bæði Ísland og Maldíveyjar tengist loftslagsbreytingum á afar nærtækan hátt, en hvort land með sínu lagi. Jöklar hopa hratt á Íslandi og valda hækkun á yfirboði sjávar sem ógnar tilvist Maldíveyja, en auk þess er óttast að hafstraumar kunni að breytast.
Forseti Íslands mun kynna forseta Maldíveyja en Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor HÍ, stýrir fundinum.
Fyrirlesturinn er á ensku og öllum opinn. Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar um Maldíveyjar eru hér:
http://racheldobric.files.wordpress.com/2009/10/maldives1.jpg
http://en.wikipedia.org/wiki/Maldives
10.3.2010 20:10




