Baldur Þórhallsson, prófessor við stjórnmálafræðideild, hélt nýlega fyrirlestur á fundi Félags atvinnurekenda (áður Félag íslenskra stórkaupmanna) undir yfirskriftinni Davíð á móti Golíat.
Í fyrirlestri sínum fjallaði Baldur um Ísland sem smáríki og hversu slæmt það væri fyrir landið að hafa hvorki efnahagslegt né stjórnmálalegt skjól hjá alþjóðastofnun eða nágrannaríkjum. Baldur rifjaði upp sögulegar staðreyndir og taldi m.a. upp ríki sem áður höfðu veitt Íslandi slíkt skjól, s.s. Noreg, Danmörk, Bretland og nú síðast Bandaríkin. Kom það á daginn, þegar hrunið átti sér stað í október 2008 og Íslendingar leituðu til Seðlabanka Bandaríkjanna, að þjóðin var ekki lengur í þeirra efnahagslega skjóli og þeir neituðu aðstoð.
Í lok fyrirlestrar talaði Baldur um að Ísland væri eina óvarða smáríkið í Evrópu í dag. Minnti hann á að Íslandi hafi vegnast best þegar það var í sem nánustu sambandi við nágrannaþjóðir sínar, og hvatti þar af leiðandi til áherslu á að vinna þeirra traust aftur.
15.3.2010 12:11
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...
Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Hagfræðitilraunir á...
Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...
Rannsaka áhrif bólusetninga
Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður nálægt einni milljón evra,...
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.