Ásta Möller ráðin nýr forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála

Ásta Möller hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og hefur þar störf í vikunni.  Hún mun jafnframt hefja kennslu í stjórnmálafræðideild nú á vormisseri.  

Ásta lauk BSc námi í hjúkrunarfræði 1980 og MPA meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2006.  Hún var alþingismaður og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin  1999-2009.  Þar átti hún m.a. sæti í fjárlaganefnd og heilbrigðis- og trygginganefnd, en hún var formaður heilbrigðisnefndar 2007-2009. Hún var formaður Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins 2005-2009 og var kjörin í stjórn framkvæmdastjórnar sambandsins 2008.   Hún var formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 1989-1999 og varaformaður Alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga  2001-2005.  Ásta hefur ennfremur starfað við hjúkrun, stjórnun og kennslu á heilbrigðisstofnunum.  Hún var settur aðjúnkt í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands 1982-1984. 

Ásta hefur átt sæti í mörgum nefndum á vegum stjórnvalda í opinberri stefnumótun og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, m.a. í miðstjórn og framkvæmdastjórn og er nú formaður velferðarnefndar flokksins.  

Ásta Möller tekur við af Margréti S. Björnsdóttur, sem hefur verið forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða frá árinu 2002.   Margrét hefur verið ráðin aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ og mun áfram sinna verkefnum fyrir stofnunina.

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er af stjórnmáladeild Háskóla Íslands, í samstarfi við  Reykjavíkurborg.   Stofnunin er vettvangur samstarfs Háskóla Íslands við fjölda opinberra aðila og samtaka um eflingu náms, rannsókna  og umræðna um íslenska stjórnsýsla og stjórnmál.    Stofnunin gefur út veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla.  Unnt er að kynna sér frekar starfsemi Stofnunar stjórnsýslu og stjórnmála á heimasíðu hennar

Skrifstofa Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála er með aðsetur í Gimli. Netfang  forstöðumanns, Ástu Möller, er astam@hi.is


18.1.2010 10:36


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.