Álfar og húmor á dalvísku elliheimili

Þjóðfræðinemar við Háskóla Íslands hafa um nokkurra ára skeið haft umsjón með þáttagerð í Ríkisútvarpinu. Á næstunni hefst útsending á þessum þáttum níunda árið í röð og umfjöllunarefnið er alltaf þjóðfræði af einhverju tagi.

Farið er vítt og breitt í þáttagerðinni, dæmi um efni sem verið er að vinna þessa dagana eru: Húmor í hjúkrun, hrútadagur í Þingeyjarsýslu, dýrgripir sem álfar gefa mönnum að launum, flekaveiðar á Skagafirði og húmor á elliheimilinu á Dalvík.

Þættirnir höfða til fjölmargra, en um og yfir 13000 manns hlusta á hvern einasta þátt. Nafn þáttarins er Þjóðbrók og  er á dagskrá RÚV.


28.10.2009 10:24

deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...