Afmælisrit Björn Þ. Guðmundsson - Sjötugur 13. júlí 2009
Bókaútgáfan Codex og Lagastofnun Háskóla Íslands hafa gefið út ritið Afmælisrit Björn Þ. Guðmundsson - Sjötugur 13. júlí 2009, en Björn Þ. Guðmundsson var prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands frá 1978 þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Fyrir þann tíma var hann héraðsdómari. Björn á að baki langan feril á sviði rannsókna og framhaldsmenntunar í lögfræði , aðallega í Þýskalandi en einnig í Bandaríkjunum og Hollandi. Hann var formaður Dómarafélags Reykjavíkur og Íslandsdeildar Amnesty International. Síðari árin gegndi hann oft varadómarastörfum í Hæstarétti, samhliða störfum sínum við deildina. Sem prófessor lét Björn einkum til sín taka á sviði stjórnsýsluréttar. Ritverk og lögfræðirannsóknir Björns liggja einkum á því réttarsviði og var hann lengst af einn helsti stjórnsýsluréttarsérfræðingur hér á landi. Árið 1973 gaf hann út bókina Lögbókin þín sem er lögfræðileg handbók rituð fyrir almenning og raunar einnig fyrir laganema og lögfræðinga. Er það rit einstakt á sviði lögfræði.
Í ritnefnd voru Stefán Már Stefánsson, prófessor og formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor og Þorgeir Örlygsson dómari við dómstól EFTA. Jafnframt naut ritnefndin aðstoðar Lagastofnunar Háskóla Íslands.
Í afmælisritinu eru alls 14 ritrýndar fræðigreinar sem flestar tengjast fræðasviðum Björns. Útsölustaðir ritsins eru m.a. bóksala Úlfljóts, Lögbergi, Bóksala stúdenta, Háskólatorgi, verslanir Pennans / Eymundssonar og Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi.
Nánari upplýsingar um ritið, höfunda þess og greinar má finna á heimasíðu bókaútgáfunnar Codex.
4.2.2010 08:56



