Afhending prófskírteina á Hugvísindasviði í október

Það verður engin brautskráningarathöfn hjá Háskóla Íslands í október en nemendur sem ljúka námi í september geta fengið prófskírteini sín afhent á skrifstofu Hugvísindasviðs á 3. hæð Aðalbyggingu mánudaginn 26. október 2009 eða síðar. Enn fremur er kandídötum gefinn kostur á því að vera við brautskráningarathöfnina 27. febrúar 2010 ef þeir svo kjósa.

Nemendur sem vilja vera viðstaddir og fá skírteinið sitt í febrúar þurfa að láta vita með því að senda póst með nafni og heimilisfangi á hug@hi.is. Þeir munu þá fá sent boðsbréf á athöfnina og nánari upplýsingar þegar nær dregur.


20.10.2009 14:36


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.