AÐ FANGA HEIMINN - ný bók um alþjóðamarkaðssetningu

Út er komin bókin: AÐ FANGA HEIMINN eftir Gunnar Óskarsson.

 

Þessi bók er fyrsta bindi í ritröð sem ber heitið AÐ FANGA HEIMINN. Bækurnar innihalda umsagnir á íslensku um greinar sem birtst hafa í viðurkenndum tímaritum og fjalla um viðfangsefni alþjóðamarkaðssetningar. Ennfremur innihalda bækurnar stuðningsefni, sýnishorn og heilræði fyrir greiningu á erlendum mörkuðum. Bókin er fyrst og fremst skrifuð fyrir kennslu á háskólastigi, en efni hennar á einnig erindi til þeirra sem starfa í fyrirtækjum og vilja ná árangri á erlendum mörkuðum eða annarra sem hafa áhuga á viðfangsefninu.
Fyrirtæki sem hafa sótt á erlenda markaði eru af ólíkum gerðum og stærðum. Þannig má nefna Villimey, lítið og sérhæft fyrirtæki sem selur smyrsl til lækninga, Húfur sem hlæja, fyrirtæki sem byrjaði smátt, en hefur nú náð fótfestu á nokkrum mörkuðum , CCP, sem hefur vaxið upp í að vera með nokkur hundruð starfsmenn og starfsemi í þremur heimsálfum, Marel sem byrjaði sem lítið tæknifyrirtæki, en er nú orðið leiðandi fyrirtæki á sínu sviði á heimsvísu og þannig mætti lengi telja.
Ástæðan fyrir framtaki þessara fyrirtækja er að þau sjá ávinning af því nýta tækifæri sem bjóðast á erlendum mörkuðum. Það er flókið verkefni og ræðst að töluverðu leyti af því hvernig staðið er að undirbúningi, rannsóknum og innleiðingu aðgerða. Áður en farið er af stað getur verið gagnlegt að kynna sér rannsóknir sem áður hafa verið unnar og varpa sýn á hvaða aðgerðir eru líklegar að skila árangri og hverjar ekki.

Gunnar segir að líkja megi nafninu AÐ FANGA HEIMINN við það þegar við förum í veiðitúr og viljum fanga fisk. Þá þurfum við að afla okkur upplýsinga um hvar fiskurinn liggur, hvað hann tekur, hvernig er best að fara að honum og landa honum. Jafnvel vanir veiðimenn leita ráða hjá þeim sem þekkja svæðið til að fá upplýsingar um staðaraðstæður, skilyrði, hvernig gekk í næsta holli á undan o.s.frv. Þessara upplýsinga afla þeir í veiðibókum, hjá veiðiverðinum, öðrum veiðimönnum og jafnvel kokknum á staðnum sem getur verið brunnur gagnlegra upplýsinga. Þá getum við rétt ímyndað okkur markaðssetningu á mörkuðum þar sem við höfum litla eða takmarkaða þekkingu og þurfum að leita ráða, en vitum ekki hvert við eigum að leita eða hvar við getum aflað upplýsinga. Þörfin fyrir þekkingu er enda svo umfangsmikil að um hana verður ekki fjallað í einni bók. Bókin er byggð á safni greina sem fjalla um viðfangsefni alþjóðamarkaðssetningar, en í stað þess að birta greinarnar sjálfar, samanstendur hún af umfjöllun og samantekt um þær og kynnt sjónarmið sem gott er að hafa í huga við lestur þeirra. Í mörgum tilfellum er það fullnægjandi, en ef viðkomandi hefur áhuga á að lesa greinina í heild sinni, getur hann nálgast hana í gegnum landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum, sem er auðlynd sem Íslendingar eiga og er allt of lítið nýtt af stjórnendum.
Gunnar segir bókina ekki vera grunnbók um alþjóðamarkaðssetningu, heldur beri að líta á hana sem ítarefni fyrir þá sem hafa þekkingu á viðfangsefninu. „Það er hins vegar von mín að bókin stuðli að vönduðum undirbúningi hjá þeim aðilum sem vilja nýta tækifæri á erlendum mörkuðum og veiti að minnsta kosti innsýn í þau atriði sem takast þarf á við og hjálpi þeim að ná árangri“ segir Gunnar.

 Sjá nánar um bókina hér

Gunnar Óskarsson stundar doktorsnám við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.


10.12.2009 09:25


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.