Málstofa miðvikudaginn 13. janúar kl. 12:15 - Lögbergi stofu 101.
Í annað skipti í sögu lýðveldisins hefur forsetinn synjað að staðfesta lagafrumvarp sem Alþingi hefur samþykkt og þar með vísað til þjóðarinnar að kjósa um það hvort lögin verða endanlega samþykkt eða felld úr gildi. Er ákvæði stjórnarskrárinnar um þennan rétt rökrétt í ljósi þess að hér ríkir fulltrúalýðræði, er skynsamlegt að forsetinn taki einn slíkar ákvarðanir án efnislegra takmarkana og hvernig er rétt að þjóðarviljinn verði staðfestur?
Þessum og fleiri spurningum verður leitast við að svara á sameiginlegri málstofu Lagastofnunar og Orators félags laganema við Háskóla Íslands.
Beint lýðræði eða fulltrúalýðræði? Eiríkur Tómasson prófessor við Lagadeild HÍ.
Valkostir um að vísa málum til þjóðarinnar: Björg Thorarensen prófessor við Lagadeild HÍ.
Þjóðaratkvæðagreiðslur og þjóðarviljinn: Gunnar Helgi Kristinsson prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ.
Að loknum framsöguerindum verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir.
22.1.2010 08:24
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...
Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Hagfræðitilraunir á...
Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...
Rannsaka áhrif bólusetninga
Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður nálægt einni milljón evra,...
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.