8. hefti ritraðar Lagastofnunar

8. hefti ritraðar Lagastofnunar - Réttarreglur um losun gróðurhúsalofttegunda eftir Hrafnhildi Bragadóttur lögfræðing er komið út. Hrafnhildur vann rannsóknarverkefnið undir leiðsögn Aðalheiðar Jóhannsdóttur prófessors við lagadeild HÍ og var það styrkt af LEX lögmannsstofu.
Markmið ritgerðarinnar er að gera grein fyrir alþjóðlegum skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum og áhrifum þeirra á íslenskan rétt. Hefur í þessu skyni einkum verið litið til skuldbindinga Kýótó-bókunarinnar um magntakmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda og löggjafar Evrópubandalagsins í loftslagsmálum sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn.

Þýðingarmesta aðgerð íslenska ríkisins til að efna alþjóðlegar skuldbindingar sínar á sviði loftslagsmála felst í setningu laga nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda. Lögin eru að ýmsu leyti óskýr og láta mikilvægum spurningum ósvarað. Í ljósi þess hve mikla hagsmuni er um að tefla fyrir viðkomandi fyrirtæki hlýtur að teljast mikilvægt að á þessu verði gerð bragarbót sem fyrst, eftir atvikum með breytingu á lögunum sjálfum eða setningu reglugerða í samræmi við heimildir laganna.

Athygli vekur að íslenska ríkið hefur ekki fetað í fótspor nálægra ríkja og komið á fót innanlandsmarkaði með losunarheimildir. Loks má nefna að engar ráðstafanir hafa enn verið gerðar til að heimila einstaklingum og lögaðilum að eiga viðskipti í evrópska viðskiptakerfinu með losunarheimildir. Í ritgerðinni eru færð rök fyrir því að íslenska ríkinu kunni að bera skylda til þess samkvæmt EES-samningnum.

Verð til áskrifenda er kr. 3.960.- en heftið er einnig til sölu hjá Bóksölu Úlfljóts og Bóksölu Stúdenta.
Hægt er að gerast áskrifandi með því að senda tölvupóst með nafni, kennitölu og heimilisfangi á netfangið lagastofnun@hi.is


2.10.2009 09:35


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...