Viðskiptafræði



MS línan í viðskiptafræði er hugsuð sem tækifæri fyrir einstaklinga sem hafa lokið BS prófí í viðskiptafræði eða hagfræði (eða jafngildu undirbúningsnámi) og vilja verða sér út um framhaldsnám á breiðum grundvelli í viðskiptafræði. Nám til MS í viðskiptafræði er 90 einingar hið minnsta, þar af 60 einingar í námskeiðum og ritgerð sem er að lágmarki 30 einingar.

MS náminu á þessari línu munu nemendur styrkja sig í undirgreinum viðskiptafræðinnar eins og fjármálum, markaðsfræði, reikningshaldi og stjórnun. Námskeið úr þessum greinum mynda kjarnanámskeiðin á línunni. Nemendum gefinn kostur á því að velja sér valnámskeið úr miklum fjölda námskeiða sem eru í boði á hinum ýmsu sérsviðum innan deildarinnar. Nemendur þurfa þó að huga vandlega að forsendum til að sækja viðkomandi námskeið og uppfylla þær forkröfur sem gerðar eru.

Markmið
Kennslan miðar að því að nemandinn öðlist góðan skilning og tileinki sér eftirsóknarverða færni bæði við rannsóknir og hagnýtingu á fræðunum, t.d. á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar, skipulags fyrirtækja, nýsköpunar, þekkingarstjórnunar, verkefnastjórnunar og árangursstjórnunar.

Atvinnumöguleikar
Námslínan byggir á þverskurði af viðskiptafræðunum og markmiðið er að gefa nemendum heildstæða þekkingu sem mun nýtast vel í atvinnulífinu sem og við rannsóknir á starfsemi fyrirtækja í heild sinni. Þeir sem ljúka MS í viðskiptafræði hafa tileinkað sér þekkingu á breiðum grundvelli sem nýtist í mörgum störfum.

Inntökuskilyrði
BA-, BS- eða cand. oecon.-próf í viðskiptafræði eða hagfræði eða annað sambærilegt próf er skilyrði fyrir inntöku í MS-nám í viðskiptafræði. Nemendur sem hafa lokið BA- eða BS-prófi eða sambærilegu prófi í öðrum greinum geta sótt undirbúningsnám í viðskiptafræði og fengið inngöngu í MS-námið að því loknu. Almenna reglan er að umsækjendur hafi fyrstu einkunn (7,25).

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón: Kári Kristinsson, lektor (karik@hi.is)

Umsókn í framhaldsnám

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011