Stjórnun og stefnumótun



MS nám í stjórnun og stefnumótun er í senn bæði fræðilegt og hagnýtt. Áhersla er lögð á að tengja saman þau stjórnunarfræði sem hafa staðist tímans tönn og nýjustu þekkingu á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar.
Fullt nám í þrjú misseri (miðað er við fullan námshraða og 30 eininga ritgerð).

Markmið
Kennslan miðar að því að nemandinn öðlist góðan skilning og tileinki sér eftirsóknarverða færni bæði við rannsóknir og hagnýtingu á fræðunum, t.d. á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar, skipulags fyrirtækja, nýsköpunar, þekkingarstjórnunar, verkefnastjórnunar og árangursstjórnunar.

Atvinnumöguleikar
Lagt er kapp á að námið verði ávallt góður undirbúningur fyrir mikilvæg stjórnunarstörf hjá fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.

Inntökuskilyrði
MS-nám í stjórnun og stefnumótun er í boði fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa fyrsta háskólaprófi, þ.e. BS- eða BA-gráðu. Við val á umsækjendum verða þeir sem hafa háskólapróf í félagsvísindum í forgangi. Mikilvægt er að nemendur hafi lokið grunnnámskeiðum í vísindalegum vinnubrögðum, s.s. aðferðafræði og tölfræði. Almenna reglan er að umsækjendur hafi fyrstu einkunn (7,25).

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón: Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor (mss@hi.is).

Umsókn í framhaldsnám

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011