Reikningsskil og endurskoðun
Meistaranám í reikningsskilum og endurskoðun lýkur með prófgráðunni Master of Accounting and Auditing (MAcc). Meistaranámið er fjögurra missera nám.
Tvær brautir, 90 einingar og 120 einingar
Hægt er að velja um að taka meistaranám í reikningsskilum og endurskoðun sem 90 eininga nám eða 120 eininga nám.
Nemendur á báðum brautum taka sömu 15 skyldunámskeið, nemendur sem skráðir eru í 120 eininga námið skrifa að auki 30 eininga meistaraprófsritgerð.
Samkvæmt breyttum reglum LÍN (sjá www.lin.is frá júlí 2009) er 90 eininga námslínan ekki lánshæft til framfærslu en 120 eininga námslínan er lánshæft nám.
Tímaáætlun (pdf)
Markmið
Námið hentar mjög vel þeim einstaklingum sem hafa hug á því að vinna við fjármál,
reikningshald, reikningsskil og/eða endurskoðun í fyrirtækjum eða stofnunum þar sem sérþekking á svið reikningsskila og endurskoðunar er skilyrði fyrir starfi.
Náminu er ætlað að mæta mikilli þörf á sérþekkingu á reikningsskila- og endurskoðunarsviði.
Atvinnumöguleikar
Uppbygging námsins miðar að því að búa nemendur undir að sinna krefjandi og flóknum störfum á sviði reikningsskila og endurskoðunar en krafan um slíka menntun hefur aukist mikið hjá fyrirtækjum sem m.a. hafa skráð hlutabréf og/eða skuldabréf á verðbréfamarkaði.
Löggilding í endurskoðun
Meistaranámið í reikningsskilum og endurskoðun ásamt tilskilinni starfsreynslu, veitir rétt til
þess að þreyta próf til löggildingar í endurskoðun, en það próf er í umsjón Félags löggiltra
endurskoðenda (sjá nánar www.fle.is).
Mat á fyrra námi
Umsókn um mat á námskeiði/um vegna fyrra náms (.doc). Eyðublaðið skal senda á info-macc@hi.is
Upplýsingar um námið í kennsluskrá
Hafa samband
info-macc@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd





