Námskeið í skattarétti og reikningsskilum
Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af Viðskiptafræðideild annars vegar og Lagadeild hins vegar og miðar að því að veita fræðilega sérmenntun á sviðum er snerta skattamál og reikningsskil. Skipulag námsins er með þeim hætti að boðið er upp á námskeið í íslenskum og alþjóðlegum skattarétti, félagarétti, reikningshaldi, stjórnsýsluendurskoðun, samstæðureikningsskilum, endurskoðun, ársreikningagerð og greiningu ársreikninga.
Tvær brautir, 90 einingar og 120 einingar
Hægt er að velja um að taka meistaranám í skattarétti og reikningsskilum sem 90 eininga nám eða 120 eininga nám.
Nám til meistaraprófs í skattarétti og reikningsskilum er 90 einingar hið minnsta. Nemendur taka 12 námskeið. Hvert námskeið jafngildir 6 einingum og meistararitgerð 18 einingar.
Nám til meistaraprófs í skattarétti og reikningsskilum er 120 einingar hið minnsta. Nemendur taka 15 námskeið, þar af 3 valgreinar. Hvert námskeið jafngildir 6 einingum og meistararitgerð 30 einingar.
- Lögfræði - námskeið
- Reikningsskil - námskeið
- Sameiginlegt framlag Lagadeildar og Viðskiptafræðideildar
Nánari upplýsingar um námið (pdf)
Reglur um þverfaglegt meistaranám í skattarétti og reikningsskilum
Markmið
Meistaranám í skattarétti og reikningsskilum miðar að því að veita fræðilega sérmenntun á sviðum er snerta skattamál og reikningsskil. Með náminu er komið til móts við þarfir samfélagsins fyrir rannsóknir, þjónustu og stefnumótun sem tengist skattamálum og reikningsskilum.
Atvinnumöguleikar
Uppbygging námsins miðar að því að búa nemendur undir að sinna krefjandi og flóknum störfum á sviði reikningsskila og endurskoðunar.
Að loknu námi getur nemandi sýnt fram á þekkingu,á fræðasviði, reikningsskila og skattaréttar. Nemandinn skal hafa færni í að beita fræðilegum aðferðum og hæfni til að draga ályktanir af niðurstöðum sínum
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að hafa lokið BA prófi frá Lagadeild Háskóla Íslands eða BS prófi eða BA prófi frá Viðskiptafræðideild Háskólans eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi í sambærilegum greinum. Almennt er krafist fyrstu einkunnar (7,25) úr fyrsta háskólaprófi til þess að fá inngöngu í meistaranám.
Upplýsingar um námið í kennsluskrá
90 eininga nám
120 eininga nám
Hafa sambanda
Umsjónarmenn: Einar Guðbjartsson (eg@hi.is), dósent og Stefán Már Stefánsson (sms@hi.is), prófessor
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd





