Nám með vinnu
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður upp á nám samhliða starfi fyrir einstaklinga sem hafa reynslu úr atvinnulífinu og vilja stunda háskólanám samhliða vinnu. Deildin býður uppá meistaranám fyrir stjórnendur, MBA nám og einnig stök námskeið á BS stigi í viðskiptafræði. Einnig eru í boði tvær sérhæfðar námsbrautir á BS stigi, stjórnun og stefnumótun og stjórnun markaðsmála sem eru hvor um sig 36 einingar.
MBA
MBA nám við Háskóla Íslands er tveggja ára hagnýtt stjórnunarnám á meistarastigi þar sem gerðar eru miklar kröfur. Allt sem gert er í náminu miðar að því að ýta undir frumkvæði þeirra sem sækja námið, efla færni þeirra og búa þá undir að takast á við forystuhlutverk í atvinnulífinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á www.mba.hi.is.
Nám í viðskiptafræði samhliða starfi (BSV)
BSV námið býður upp á stök námskeið í viðskiptafræði á BS stigi. Einnig er boðið upp á stuttar námsbrautir. Námsbrautirnar sem eru í boði eru stjórnun markaðsmála (36 einingar) og stjórnun og stefnumótun (36 einingar). Námsefni og kröfur eru þær sömu og í reglubundnu námi við Viðskiptafræðideild en fyrirkomulag er með öðru sniði. Kennd eru að meðaltali 3 námskeið á misseri þar sem hvert námskeið er kennt á 6 vikum. Kennt er tvisvar í viku fyrir utan hefðbundinn vinnutíma.
Ef nemendur sækjast eftir því að fá 60/120 einingar diplóma eða BS í viðskiptafræði geta nemendur fengið námskeið í BSV metin inn í Viðskiptfræðideild.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd





