Mannauðsstjórnun



Námið snertir alla helstu grundvallarþætti í rekstri stofnana og fyrirtækja. Áhersla er lögð á að sameina hagnýtar og fræðilegar áherslur og dýpka þannig skilning nemenda á stjórnun mannauðs.
Nám til MS-prófs er 90 einingar hið minnsta, þar af eru 60 einingar í námskeiðum og 30 eininga ritgerð.

Markmið
MS nám í mannauðsstjórnun er þverfaglegt nám fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu og skilning á stjórnun mannauðs innan fyrirtækja og stofnana.

Atvinnumöguleikar
Nemendur með MS próf í mannauðsstjórnun vinna hin fjölbreyttustu störf meðal annars sem starfsmannastjórar, fræðslustjórar, kennarar, sjálfstætt starfandi ráðgjafar, ráðningarstjórar ásamt hinum ýmsu stjórnunarstörfum bæði hjá einkafyrirtækjum og hinu opinbera. Uppbygging námsins miðar að því að búa nemendur undir að sinna krefjandi og flóknum störfum.

Inntökuskilyrði
Nemendur eru valdir inn í þetta nám með hliðsjón af fyrra námi og starfsreynslu. Nemendahópurinn hefur því mjög mismunandi bakgrunn og má þar m.a. nefna: BA í mannfræði, BS í hjúkrunarfræði, cand. jur., BS í sálfræði, B. ed., BS í viðskiptafræði  svo nokkuð sé nefnt. Almennt er krafist fyrstu einkunnar (7,25).

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent (gylfidal@hi.is)

Umsókn í framhaldsnám

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011