Fjármál fyrirtækja
Í náminu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér þekkingu á því sem máli skiptir við fjármál fyrirtækja og stofnana.
Nám til MS-prófs er 90 einingar hið minnsta, þar af 60 einingar í námskeiðum og ritgerð sem er að lágmarki 30 einingar. Fullt nám í þrjú misseri (miðað er við fullan námshraða og 30 eininga ritgerð).
Markmið
Markmiðið með MS námi í fjármálum er að undirbúa nemendur undir störf og rannsóknir á sviði fjármálastjórnunar, fjármálaráðgjafar og markaðsviðskipta og ýmissar sérfræðivinnu á sviði fjármála í fyrirtækjum og fjármálastofnunum.
Atvinnumöguleikar
Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góða undirstöðu í fjármálum og geti að námi loknu fengist við flókin viðfangsefni á sviði fjármála. Námið nýtist því víða í atvinnulífinu en býr nemendur sérstaklega undir störf sem lúta að fjármálastjórn og sérfræðivinnu á fjármálasviðum fyrirtækja og stofnana eða til ýmissa starfa í fjármálafyrirtækjum eins og bönkum, sparisjóðum, verðbréfafyrirtækjum, tryggingafélögum og lífeyrissjóðum.
Inntökuskilyrði
BA- eða BS-próf í viðskiptafræði eða annað sambærilegt háskólapróf, svo sem próf í hagfræði er skilyrði fyrir því að komast í MS í fjármálum fyrirtækja. Nemendur með BA- eða BS-próf í öðrum greinum eða sambærilegt próf geta sótt um ákveðið undirbúningsnám og fengið inngöngu í MS námið að því loknu.
Miðað er við að nemendur hafi hlotið 1. einkunn (7,25), þegar þeir sækja um meistaranám.
Upplýsingar um námið í kennsluskrá
Hafa samband
Umsjón: Gylfi Magnússon, dósent (gylfimag@hi.is)
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd





