BS-S Stjórnun og forysta



Nám
Námið byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnun.

Markmið
Markmið náms í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og forystu er þríþætt. Í fyrsta lagi að nemendur búi yfir haldgóðri þekkingu á undirstöðuatriðum, kenningum og hugtökum stjórnunarfræða. Í öðru lagi að nemendur hafi öðlast færni í að beita aðferðafræði stjórnunarfræða við úrlausn viðfangsefna sem tengjast stjórnun, ráðgjöf og sérfræðistörfum og í þriðja lagi að búa nemendur undir framhaldsnám og frekari sérhæfingu á sviði stjórnunar, stefnumótunar og mannauðsstjórnunar.

Atvinnumöguleikar
Að loknu námi eiga nemendur að vera færir um að:

  • Taka þátt í undirbúningi og framkvæmd stefnumótunar sem og innleiðingu stefnu í fyrirtækjum og stofnunum.
  • Starfa að ýmsum verkefnum á sviði starfsmannamála s.s. ráðningar-, fræðslu- og launamálum. 
  • Stýra og vinna að  ýmsum verkefnum er tengjast rekstri og framleiðslustýringu.
  • Vinna að ýmsum sérhæfðum verkefnum, t.d. er tengjast verkefnastjórnun, skipulagi fyrirtækja og innleiðingu og stjórnun breytinga.

Inntökuskilyrði

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón með námsbrautinni hefur Svala Guðmundsdóttir, lektor (svala@hi.is).

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011