BS-R Reikningshald



Nám
Markmið náms í viðskiptafræði með áherslu á reikningshald er þríþætt. Í fyrsta lagi að nemendur hafi haldgóða þekkingu á reikningshaldi og reikningsskilum félaga. Í öðru lagi að nemendur hafi haldgóða þekkingu á fræðilegum hugtökum og beitingu þeirra, hafi þekkingu á lagaumhverfi reikningshaldsins, og kunni skil á gildandi reglum um skattlagningu hlutafélaga og í þriðja lagi að búa nemendur undir framhaldsnám í reikningshaldi.

Meðal sérgreina eru námskeið í ársreikningagerð, lögfræði, reikningshaldi, reikningsskilum og skattskilum. Hyggi nemendur á framhaldsnám í reikningshaldi, þurfa þeir að velja sérgreinar úr fjármálalínunni.

Atvinnumöguleikar
Að loknu námi eiga nemendur að vera færir um að:

  • Starfa við bókhald í flestum tegundum fyrirtækja og stofnana.
  • Taka þátt í bókhaldsuppgjöri og gerð ársreiknings.
  • Gera ýmis konar fjárhags- og rekstrargreiningar á upplýsingum úr bókhaldi og miðla niðurstöðunum til þeirra er á þeim þurfa að halda.
  • Taka þátt í gerð fjárhagsáætlunar hjá flestum gerðum fyrirtækja og eftirliti með framkvæmd hennar.

Inntökuskilyrði

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón með námsbrautinni hefur Jón Snorri Snorrason, lektor (jon@hi.is).

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011