BS-M Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti



Nám
Námið byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnun.
Meðal sérgreina eru námskeið í markaðsrannsóknum, utanríkisviðskiptum, stjórnun viðskiptasambanda og vörumerkjastjórnun, stjórnun viðskipta í ólíkri menningu, alþjóðamarkaðsfræði og markaðsáætlanagerð.

Markmið
Markmið náms í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti er þríþætt: Í fyrsta lagi að búa nemendur undir almenn stjórnunarstörf. Í öðru lagi að búa nemendur undir sérfræðistörf í markaðsdeildum fyrirtækja eða stofnana og í þriðja lagi að búa nemendur undir framhaldsnám á sviði markaðsfræði og alþjóðaviðskipta.

Atvinnumöguleikar
Að loknu námi eiga nemendur að geta:

  • Tekið þátt í gerð markaðs- og eða viðskiptaáætlana fyrir fyrirtæki eða stofnanir, á innanlands- eða alþjóðamarkaði.
  • Unnið að ýmsum sérhæfðum verkefnum er tengjast markaðsáætlanagerð s.s. markaðsgreiningu, markaðsrannsóknum, þjónusturannsóknum og gerð kynningaráætlana.
  • Fjallað um og kynnt niðurstöður verkefna á íslensku og ensku.

Inntökuskilyrði

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón: Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt (fridrike@hi.is)

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011