BS-F Fjármál



Nám
Námið byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnun.
Meðal sérgreina eru  námskeið í fjármálagerningum, stýringu fjármálasafna, lögfræði, rekstrarstjórnun, stærðfræði, tölfræði og upplýsingatækni. Hyggi nemendur á framhaldsnám í fjármálum, þurfa þeir að velja sérgreinar úr reikningshaldslínunni.

Markmið
Markmið náms í viðskiptafræði með áherslu á fjármál er þríþætt. Í fyrsta lagi að búa nemendur undir almenn stjórnunarstörf. Í öðru lagi að búa nemendur undir sérfræðistörf á sviði fjármála og í þriðja lagi að búa nemendur undir framhaldsnám á sviði fjármála.

Atvinnumöguleikar
Að loknu námi eiga nemendur að vera færir um að:

  • Starfa við fjármálastjórn fyrirtækja og stofnana, hérlendis og erlendis.
  • Starfa að ýmsum sérhæfðum viðfangsefnum banka og verðbréfafyrirtækja.
  • Gera ýmis konar fjárhags- og fjármögnunaráætlanir.

Inntökuskilyrði

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Umsjón með námsbrautinni hefur Jón Snorri Snorrason, lektor (jon@hi.is).

deila á facebook

Kynningarbæklingar

BS- viðskiptafræði - opna bækling Viðskiptafræði samhliða starfi 

 MA, MS, MAcc, MBA og PhD nám - opna bækling

Tímarit Háskóla Íslands 1911-2011