Um stjórnmálafræðideild



Um Stjórnmálafræðideild
Stjórnmálafræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands frá árinu 1970, fyrst við Námsbraut í þjóðfélagsfræði en síðar (frá 1976) við félagsvísindadeild. Frá 1. júlí 2008 er stjórnmálafræðideild sjálfstæð deild innan félagsvísindasviðs.

Tilkoma nýrra námsleiða á meistarastigi hefur leitt til töluverðrar fjölgunar nemenda og eru nemendur rúmlega 600. Árið 1997 hófst kennsla í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu (MPA) og árið 2005 var í fyrsta sinn boðið upp á  kennslu í meistaranámi í alþjóðasamskiptum.

Kennarar deildarinnar eru allir með doktorspróf frá virtustu háskólum heims. Rannsóknir þeirra spanna vítt svið og niðurstöður þeirra eru iðulega birtar á innlendum og erlendum vettvangi.

Deildarforseti: Þorgerður Einarsdóttir, prófessor (einarsd@hi.is)
Varadeildarforseti: Ómar H. Kristmundsson, prófessor (omarhk@hi.is)

Starfsmenn skrifstofu Stjórnmálafræðideildar eru:

Elva Ellertsdóttir, deildarstjóri, (elva@hi.is), sími: 525-4573. Gimli, herbergi 111.
Bryndís E. Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri, (bej3@hi.is), sími: 525-5445, Gimli 111.
Anna Margrét Eggertsdóttir, verkefnisstjóri, í leyfi. 


Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Árið 2003 var sett á fót Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála sem heyrir undir stjórnmálafræðideild. Auk deildarinnar koma að stofnuninni Reykjavíkurborg og Landspítali-háskólasjúkrahús.

Stofnunin hefur staðið fyrir fjölda fyrirlestra innlendra og erlendra fræðimanna, bæði ein sér og í samstarfi við hinar ýmsu stofnanir í þjóðfélaginu. Á haustmánuðum 2005 hóf stofnunin útgáfu veftímarits; Stjórnmál og stjórnsýsla, (stjórnmalogstjornsysla.is). Vefritið er útgáfuvettvangur fyrir fræðilegar og faglegar greinar um stjórnmál og stjórnsýslu. Einn hluti veftímaritsins er fyrir ritrýndar greinar, sem ætlaður er fyrir fræðimenn innan og utan Háskóla Íslands. Aðgangur að tímaritinu er opinn og geta þeir sem áhuga hafa sótt sér fróðleik um stjórnmál og stjórnsýslu á vefnum.

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur verið starfrækt frá árinu 1986 og heyrir undir þrjár af deildum Félagsvísindasviðs; Félags- og mannvísindadeild, Félagsráðgjafardeild og Stjórnmálafræðideild. Undir hatti Félagsvísindastofnunar eru starfrækt 14 rannsóknasetur og rannsóknastofur á fræðasviðum deildanna þriggja sem að stofnuninni standa, auk þess sem stofnunin er í nánu samstarfi við fræðimenn deildanna og aðrar rannsóknastofnanir innan Háskóla Íslands og utan.

Hlutverk stofnunarinnar er m.a. að efla efla rannsóknir í félagsvísindum á Íslandi með hagnýtum og fræðilegum rannsóknum. Sem dæmi um rannsóknarsvið stofnunarinnar eru kjarakannanir, menntarannsóknir, vinnustaðaúttektir, rannsóknir á kynbundnum launamun og viðhorfakannanir.

Alþjóðamálastofnun og Rannsóknarsetur um smáríki
Tvær stofnanir eru tengdar stjórnmálafræðideild, annars vegar Alþjóðamálastofnun og hins vegar Rannsóknarsetur um smáríki. Alþjóðamálastofnun var endurskipulögð árið 2002 og hefur í kjólfarið staðið fyrir fjölbreyttum rannsóknum, útgáfustarfsemi og fyrirlestrum. Að alþjóðamálstofnun standa auk Háskóla Íslands, Utanríkisráðuneytið, Samtök Iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins.

Rannsóknarsetur um smáríki leggur áherslu á rannsóknir og kennslu í smáríkjafræðum. Setrið stendur fyrir rannsóknum, ráðstefnum, málstofum og kennslu um smáríki. Gefin hafa verið út nokkur rit sem tengjast smáríkjafræðum og ritröð um stöðu smáríkja hefur verið komið á fót. Rannsóknarsetrið hefur staðið fyrir sumarskóla um Smáríki og Evrópusamrunann frá árinu 2003.

Í gegnum þessar stofnanir eru mikil og góð tengsl við innlenda og erlenda fræðimenn sem nýtast Stjórnmálafræðideild jafnt í kennslu og í rannsóknum.

deila á facebook

Skiladagar lokaritgerða vegna brautskráningar í júní 2012:

BA-ritgerðir: 27. apríl 2012

MA-/MPA-ritgerðir: 27. apríl 2012

Kynningarbæklingar

 

 BA bæklingur í stjórnmálafræði

 

 Bæklingur um Diplóma í opinberri stjórnsýslu  fyrir stjórnendur í opinberum rekstri