Fjarnám í opinberri stjórnsýslu



Haustið 2003 hófst fjarnám í diplómanámi í opinberri stjórnsýslu í tilraunaskyni. Var sú tilraun ekki síst gerð vegna áskorana fólks sem búsett er á landsbyggðinni og hefur því takmarkaða möguleika til háskólanáms á meistarastigi. Formið er einfalt og hefur sínar takmarkanir, en þó má segja að þessi tilraun hafi tekist vel og hefur því verið ákveðið að halda þessari þjónustu við landsbyggðarfólk áfram.

Fjarnámskeið háskólaársins 2011-2012 eru talin upp hér fyrir neðan. Nemendur skrá sig sem fjarnámsnema í þau námskeið sem eru í boði í fjarnámi hverju sinni.

Haustmisseri 2011

OSS101F Rekstrarhagfræði, markaðsbrestir og ríkisafskipti (6e)
OSS102F Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga (6e)
OSS111F Opinber stjórnsýsla (6e)
OSS112F Forysta og breytingastjórnun í opinberum rekstri - hlutverk stjórnenda (6e)
STJ302F Rannsóknir í opinberri stjórnsýslu og alþjóðasamskiptum (6e) (Nemendur erlendis og á landsbyggðinni geta sótt skriflega um það til kennara að taka þetta námskeið sem fjarnámskeið. Tekin verður afstaða til hverrar umsóknar fyrir sig og geta fjarnemar reiknað með að taka annars konar verkefni en staðnemar.)

Vormisseri 2012

OSS204F Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (6e)
OSS209F Starfsumhverfi og stjórnun sveitarfélaga
OSS202F Skipulag og stjórnun stofnana (6e)
OSS203F Stjórntæki hins opinbera (6e)
OSS210F Fjármálastjórnun í opinberum rekstri (6e)

Framkvæmdin er eftirfarandi: Nemendur eru boðnir til almenns upplýsingafundar með kennurum í upphafi haustmisseris. Fyrirlestrar eru teknir upp, settir á vefinn innan 24 klst. á sérstaka vefslóð sem nemendur fá uppgefna. Kennarar setja kennsluáætlun, leslista, glærur og annað efni inn á heimasvæði hvers námskeiðs. Nemendur geta því hlustað á fyrirlestrana af vefnum þegar þeim hentar. Því miður er ekki hægt að taka upp umræður sem verða, aðeins svör kennarans.

Nemendur eru einnig velkomnir að mæta í tíma þegar þeir eru í bænum. Próf eru tekin í símenntunarmiðstöðvum í heimabyggð nemenda. Fjarnemar geta með þessum hætti lokið amk. diplómaprófi í opinberri stjórnsýslu, en áhugi er á að þeir geti einnig lokið meistaraprófi.

Nánari upplýsingar um fjarnámið veitir Margrét S. Björnsdóttir í síma 525 4254 eða í tölvupósti: msb@hi.is.

Þeir sem nú stunda námið í fjarnámi eru búsettir víðs vegar um landið, starfa hjá sveitarfélögum, í margs konar stofnunum, skólum og hjá sýslumannsembættum. Að verulegu leyti er um að ræða sjálfsnám, en fjarnemendurnir hafa umtalsvert samband sín í milli, og vinna m.a. að hópverkefnum saman.

Umsjón með fjarnámi í opinberri stjórnsýslu hefur Margrét S. Björnsdóttir.

deila á facebook

Skiladagar lokaritgerða vegna brautskráningar í júní 2012:

BA-ritgerðir: 27. apríl 2012

MA-/MPA-ritgerðir: 27. apríl 2012

Kynningarbæklingar

 

 BA bæklingur í stjórnmálafræði

 

 Bæklingur um Diplóma í opinberri stjórnsýslu  fyrir stjórnendur í opinberum rekstri